hef ekkert að segja
er að læra
langar frekar að horfa á dvd
sá USA vs John Lennon í gær, helvíti góð mynd. Það gæti verið eins konar kennslumyndband í mótmælum núna, ekki veitir af. Þessi mótmæli eru eitthvað svo arfaslöpp finnst mér og ömurlegar tilraunir til æsings eins og ,,friðsöm mótmæli eiga við á friðartímum en ekki nú". Veit ekki alveg hvort fólk sem hefur upplifað raunverulegar styrjaldir og fátækt myndi taka undir að hér ríki eitthvað stríðsástand en hvað veit ég? Ekki rass. Og eftir þessi orð eru mótmælendur blessuð beðin um að taka til eftir sig draslið svo ekki sjáist nú merki um neitt. Allt fallið í ljúfa löð þangað til eftir viku.
En þá hefjast einmitt próf hjá mér...ossomossa.
12 comments:
Já það er lúxusþjóð sem mótmælir einu sinni í viku, klukkutíma í senn.
ég styð mótmæli en skil ekki alveg af hverju þetta fólk er svona reitt , það er þetta sem reyndi að brjótast inn á lögreglustöðina...sýndist mér þekkja þarna nokkra listamenn eða listaháskólanema....varla eru þeir að missa vinnuna eða bugast undan risavöxnum myntkörfulánum....hefði meiri skilning ef þetta væri atvinnulaust fjölskyldufólk sem væri að missa þakið ofan af sér....eða eitthvað
kv,
Valdís vitlausa
já, þessir mótmælendur sem kjósa að hylja andlit sitt meðan þau bjástra með einhvern fána er frekar vandræðalegt allt saman. Enn vandræðalegra að handtaka það!
Minnir mig á frásögn mömmu sem tók þátt í ýmsum mótmælum og setu m.a til að hrekja herinn á brott. Einu sinni var farið í einhverja fjöru sem tilheyrði hernum og fólk ætlaði aldeilis ekki að láta kúga sig. Gekk fram og tilbaka í þessari fjöru, viðbúin því að vera handtekin, þvi þetta væri þeirra land en ekki kananna. Svo kom enginn til að handtaka og eftir nokkra klukkutíma göngu fram og tilbaka í þessari helv...fjöru (sem þeim var eflaust alveg sama um) fóru þau heim. Frekar misheppnað allt saman.
er listafólk e-ð ólíklegra en annað fólk að hafa tekið myntkörfulán eða missa vinnuna ?
mér finnst bara að fólk megi mótmæla því sem það vill þegar það vill.
enginn að segja að þau megi ekki mótmæla þegar þau vilja.
En mega aðrir ekki vilja fara aðrar leiðir en að kasta eggjum í lögreglu eða er til einhver "handhafi sannleikans" í þessum efnum?
Sammála HR. Ekkert gefið að mýtan um listafólkið komi málinu nokkuð við. Lögreglan sagði auk þess sjálf að þarna hefði verið um mjög breiðan og ólíkan hóp fólks að ræða.
Það er úreld hugmynd að mótmæli geri ekkert gagn að mínu viti. Hvað er heimspressan að fjalla um núna? Mótmælin. Íslenskir fjölmiðlar? Loksins hafa þeir fjölmiðlar sem þó eru eftir (heyrt að það sé mun undirmannaðra og færra fólk í þeim störfum nú) sagt fréttir af mótmælum með aðeins öðruvísi efnistökum en áður.
Auðvitað má fólk mótmæla. Hver sem er, hverju sem er. Er það að mótmæla ekki tæki tjáningarfrelsisins og fyrirbæri sem er hluti af grunnstoðum lýðræðisríkja?
Og nei, myntkörfulánin eru allstaðar, það er pínu erfitt að lesa svona athugasemdir um steríótýpur:)
Mér finnst það ekkert flokkast undir lúxus að mótmæla. Það væri að sjálfsögðu betra að búa í samfélagi þar sem fólki finndist yfirhöfuð það ekki þurfa að tjá sig. Að mótmæla einu sinni í viku kemur þeim áðurkallaða "lúxus" ekkert við. Var þjóðin sofandi á feigðarrósi? Já kannski. Ég þarf ekkert verstu dæmin (því þetta verður verra) til þess að finna fyrir sorg og reiði. Ég held ég skilji það ekkert betur þegar ég missi húsnæðið líka, þó svo ég sé búin að missa vinnuna.
Að lokum vildi ég bara segja að mér finnst ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt Sigga, þú ert afar vitur og málefnalega kona. Og ég er stolt af þér.
En aftur, mínar skoðanir og allt gott og blessað um það að segja:)
kv, Ása
hehe ég var ekkert að meina þetta neitt illa sko. sá þegar ég las þetta aftur að þetta var hálf fílupúkalegt komment hjá mér.
en jú einmitt, mér finnst bara allir mega mótmæla þegar þeir vilja og mér sýnist einmitt að stærstur hlutinn sé ekki að nota egg til þess.
eggin eru ekki málið, sammála því:)
Einmitt svona skoðanaskipti eru góð, að mínu mati er lýðræðið samræðum sem þurfa að vera á báða bóga (stjórnvöld og fólkið). Ég held reyndar að þið hafið aðeins mislesið orð stúlknanna. Þær vilja eitthvað meira skildi ég þetta.
Mér finnst þessi kröfuganga einu sinni í viku þörf og allt gott og blessað með það. En það þarf meira til og ég held að Guðrún hafi átt við það. Neyðarstjórn kvenna er að mínu mati ótrúlega flott framtak, með inntak og eitthvað sem er ekki hægt að skella skollaeyrum við. Þær hafa hist amk 1x í viku með málstofur og hugarflæðisfundi um ástandið. Þegar sú vinna er búin láta þær í sér heyra. Einnig var hópur fólks sem tók sér stöðu á brúnni yfir Kringlumýrabrautinni og hvatti fólk til að flauta sem vildi seðlabankastjórn burt. Fleiri svona hópar mættu spretta fram þar sem fólk kemur saman til að leita lausna og taka þátt í þeirri a
æsamræðu sem lýðræði óneitanlega er. Mér finnst of mikið að máttlausri gagnrýni og engu inntaki. En fjalla fjölmiðlar um ofangreinda hópa? Það hefur lítið sem ekkert verið fjallað um neyðarstjórn kvenna miðað við þetta eggjakast.
Ég skil líka hvað Valdís var að tala um og hún var ekki að nota steríótýpuna heldur þekkir persónulega suma úr hópnum. Hópurinn sem hefur sig hvað mest frammi og fær mestu athyglina (og eru svona reið) nota aðferðir sem stjórnvöld geta svo auðveldlega afgreitt sem skrílslæti. en hópar sem hafa lagt vinnu og hugsun á málefnalegum nótum, eða vikuleg friðsöm mótmæli, er erfiðara að hundsa. Sbr. aðferðir Gandhis og Lennons. Lennon náði að frelsa gæja úr fangelsi með einu lagi!
En ég tek undir með þér Hanna, stærstur hlutinn er ekki að nota eggjakast og þess vegna er það ömurlegt ef stjórnvöld fá færi á að afgreiða þetta allt sem "skrílslæti".
Takk fyrir hrósið Ása. Sjáumst í löns á morgun vonandi :-)
pease out. Sigga
P.s ég hefði tryllst ef þessi ritgerð hefði svo ekki birst hehehe.
algerlega sammála þér í því Sigga, enda er ég meðlimur í Neyðarstjórn kvenna og það hefur aðallega verið útvarpið sem fjallar um starfsemi af þeim toga, sem er í raun vítavert, en þar sem allir fjölmiðlar landsins eru komnir undir einn hatt þá segi ég bara a.m.k. bravó við því.
Mér finnst ágætt hjá fólki að mæta á laugardögum og mótmæla, stappa í hvort annað stálinu og sýna enn einu sinni fram á óánægju sína. Rétt eins og Frakkarnir góðu, þjóð mótmælanna, gerir. Eða gerði í það minnsta í MPL þegar það mótmælti stríðinu í Írak. Það hefðu svo sem mátt vera háværari raddir hér varðandi það mál. En hvað um það.
Venjulegt fólk sem enn heldur vinnu sinni og sinnir fjölskyldu hefur líklega ekkert ofsalega mikinn tíma aflögu á hverjum degi til að taka þátt í daglegum mótmælum. Laugardagar, frídagar flestra, eru því kjörnir til mótmæla. Og þið nefnið fullt af dæmum um að minni hópar fólks séu í litlum aðgerðum.
Hvað fjölmiðla varðar þá hef ég tekið eftir því, ég sem fæ allar mínar fréttir einungis í gegnum fjölmiðla, minnst beint frá fólki,já, hef tekið eftir þvi að fjölmiðlar hafa breytt umræðu sinni um mótmælin til jákvæðari vegar eftir opinn borgarafund með fjölmiðlum. Þar er kominn enn einn vettvangur fyrir samræðu, þessir borgarafundir á mánudögum. Svo mér sem "útlendingi" virðist sem fullt sé í gangi. Neyðarstjórn kvenna einmitt sniðug, þótt meira mætti fjalla um hana.
En já, þetta er orðin ritgerð. Og í lýðræði má skrifa eins margar ritgerðir og kona vill ;)
Mótmæli eru að sumu leiti lúxus, lýðræði er fyrir sumum lúxus og það er frábært að fólk sé að átta sig á því að það geti og EIGI að mótmæla, átti sig á því hvað felist í lýðræði og réttindum sem þeim ætti að fylgja. Þótt pínu sorglegt sé að það gerist fyrst núna þegar það kemur við pyngjuna.
Lifið heil!
//eög
p.s. akkúrat núna er ég að hlusta á Rás 1 er verið að tala um Unifem og konur á krepputímum og jafnrétti (mér heyrist þetta vera Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir sem situr fyrir svörum).
p.p.s.....og nú kemur lag Lennons, "Woman is the nigger of the world". Seiseisei.
Post a Comment