Tuesday, November 25, 2008

Það er greinilegt að mótmæli eru vinsælli en kveðskapur Páls Ólafssonar nú á dögum miðað við komment og kommentalengd. Fólk ber ekkert skynbragð á list lengur.

Annars varð ég fyrir miklum vonbrigðum í gær. Horfði á Bridget Jones fyrstu myndina aftur en hana hef ég ekki séð síðan í bíó vorið 1820. Djöfull var hún leiðinleg og hallærisleg! Og mér sem fannst hún svo fyndin og hnittin á sínum tíma. Eina sem bjargaði þessari mynd var elskan hann Colin Firth.

Jæja, almennan bíður. Annars vil ég taka það fram að kona má skrifa eins margar ritgerðir í þetta kommentakerfi eins og lengi og hún vill, og menn líka. Svo lengi sem það er gert undir nafni og fyllstu háttvísi gætt. En ég hef svosem ekkert þurft að kvarta undan skorti á slíku hér. 

A prochain fois! 

14 comments:

Regnhlif said...

já, hún eldist djöfull illa.

hins vegar finnst mér bókin ennþá fyndin:)

hanna rún said...

já horfðí einmitt á hana um daginn og var dáldið æjæj, ekki gott sko.

myndin hefur líklega elst illa, en ég hafði samt dáldið á tilfinningunni að ég hefði bara elst svona vel. (þroskast s.s.)
:)

Guðrún Vald. said...

ég sem var á leið að horfa á hana aftur, kannski ég sleppi því bara.

siggaligg said...

nei nei. tékkaðu á henni og athugaðu hvort þú hafir ekki elst svona vel ;-)

Anonymous said...

Kommmmooooooooooon Sigga! Ertu enn skotin í Colin Firth? Ég sem hélt að það hefði elst af þér....... ;P

//eög

p.s. ljóð gera konu og mann oftar en ekki kjaftstopp, slík er fegurðin og dýrðin að eilífu amen.

p.p.s. nú er ég ekki kjaftstopp og er með spörningu: "Watslofgottúdúviððitt?" Lof sé Tinu.

hanna rún said...

colin eldist ekki af manni !

siggaligg said...

ÓNEI!!! Ég eldist vonandi aldrei upp úr skoti mínu á colin firth...ahhhh, að þú hafir stungið upp á því!!

;-)

Guðrún Vald. said...

ég ætla ekki að tjá mig um hvaða leikurum ég hef verið skotin í.

Anonymous said...

Mr. Cage enn efst á lista, Guðrún?

//eög

Anonymous said...

HA?? Það er greinilegt að ég hef ekki elst, allavega ekki vel.
En sál mín er ósköp einföld líkt og húmor minn sem ég hef oft fengið að heyra að sé á fremur lágu plani. Þó ekki af neinum sem hér skrifa.

Sigurrós

siggaligg said...

já en Sigurrós, það er ekki hægt að vera svona falleg og líka með þróaðan húmor!

Sjáðu bara Ásdísi Rán!

;-) Grín....

asa said...

úff ég kafnaði næstum ofan í kaffinu mínu við síðustu ummæli. Þetta er officially besta Ásdísar Rán djókið sem ég hef heyrt ever.

Anonymous said...

HAHAHAHAHAHAHAHA! Góðuuuuuuuuuuuur ;)

//eög

Sigurrós said...

AHAHAHAHAHAH!!

ok, þá kannski er húmor minn eitthvað þróaður, en gengur samt hægt...