Sunday, November 30, 2008

Jólamyndatakan í ár

Ég hef verið að plana jólamyndatökuna í ár í nokkra mánuði og sá fyrir mér ægilega kósý myndir. Þannig hafði ég hugsað mér að teknar yrðu nokkrar myndir af börnunum fyrir framan arininn í sparifötunum sínum, broshýr og uppstillt. Svo nokkrar úti fyrir framan huggulegt jólatré með jólaseríu, snjó og snjóþotu og eplarauðar kinnar barnanna sem bókstaflega ljómuðu af yndisleik. 

Þetta var nú ekki alveg svona.

Ása mætti með þrífót upp úr hádegi en þá höfðu börnin leikið sér ákaflega fallega saman inn í herbergi allan morguninn og mamman ekki vitað af þeim. Ása vakti auðvitað mikla athygli og ekki síst þrífóturinn hennar. Svo var börnum skellt í sparifötin, greidd og ég smellti á mig maskara enda hafði ég séð nokkrar myndir fyrir mér þar sem ég held stóísk á börnunum með bók í hendi. 

Það náðist ekki ein einasta mynd af þeim saman þar sem þau voru annaðhvort bæði kyrr eða bæði að horfa upp. Herdís Anna hafði mun meiri áhuga á ljósmyndaranum og það sem var að gerast fyrir aftan myndavélina en að sitja uppstillt og kjurr og drengurinn náttúrulega harðneitaði þessari vitleysu. Úti í garði má sjá nokkrar myndir þar sem ég reyni máttlaust að halda þeim stilltum á einhverju teppi fyrir framan tréð á drullugri jörð (gat ekki einu sinni verið almennilegur snjór!) og svo nokkrar af þeim í fótbolta. Veit ekki alveg hvaða mynd fer utan á jólakortin þar sem það þarf örugglega að skeyta tveimur myndum saman eða senda tvær, eina af Geir og eina af Herdísi því þau bara festust ekki saman á filmu. 

Geir Hannes var hins vegar hæst ánægður með frammistöðu sína og lýsti hróðugur atburðarrásinni á svohljóðandi hátt: ,,og svo kom Ása í heimsókn. Hún opnaði hurðina fyrir mig og lék við mig úti. Hún er voðalega góð".  

8 comments:

Rúna said...

hahaha ótrúlega fyndið!!!!!!!!!!!
sé þetta alveg fyrir mér:) takk fyrir hressandi afmælispartý í dag,
xx Rúna og guttar

hanna rún said...

ég hlakka til að sjá afraksturinn :)

Regnhlif said...

Frábært að Ása skyldi opna hurðina fyrir Geir (greinilega frásagnarvert):)

Er ekki bara gaman að svolítið misheppnuðum barnamyndum?

siggaligg said...

jú jú, er þetta ekki bara lýsandi fyrir aldurinn eða eitthvað ;-)

Já, takk sömuleiðis Rúna og fyrir drenginn!!

Anonymous said...

Hahahahahahahahaha!!!!! Yndislegt!! Típískt þetta með fullkomnu myndina í hausnum (hvort sem það er nú alvöru ljósmynd eða eitthvað annað) og svo raunveruleikann. En mér fannst þetta afskaplega skemmtilegt aflestrar:) Bið að heilsa þrjósku-og fjörkálfunum!






....hvað eru þrjóskukálfar?

//eög

Tinnuli said...

éG DEY úr hlátri. Og varðandi kommentleysi hjá PÓ þá var þetta bara of djúpt, satt og fagurt til að kommenti tæki.

siggaligg said...

já enda var það smá grín á ferðinni. Hef sjálf voðalega lítið lagt í vana minn að kommenta á ljóðafærslur :)

Anonymous said...

hahaha! ég er viss um að þessar myndir verða bara yndislegar!
kv,
valdís björt