Nú þarf skottan stundum að hafa fyrir hlutunum, sérstaklega ef hún vaknar á næturnar og það hafa verið mótmæli af hennar hálfu á stundum. Ég gerði mér samt ekki grein fyrir hversu rosalegt afl barnið hefur fyrr en áðan þegar ég tók þennan strimil af og sá að hún er búin að rífa festingarnar af honum á tveimur stöðum!
Þvílíkt grip sem barnið hefur, það er ekkert smá massívt efni í þessu og alveg fóðrað og allt. Ég er eiginlega frekar hrifin verð ég að segja.
3 comments:
GIRL POWER!
//eög
þetta eru víóluhendur! ó já, láttu mig þekkja það :)
Það er kraftur í stúlkunni. Hvaðan skyldi hún nú fá það?
Post a Comment