Sunday, November 02, 2008

Stjórnmálafræði 101

STJÓRNMÁLAFRÆÐI 101

FASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

SÚRREALISMI Þú átt 2 gíraffa. Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar. Þú átt 2 kýr. Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.

Þetta er reyndar styttri útgáfa. Tekið upphaflega af kjosa.is og ég svo frá tinnuli.

3 comments:

Guðrún Vald. said...

Ahhh hvað það er gott að hlægja smá í miðjum ritgerðarskrifum og krepputali.

Anonymous said...

Ég aðhyllist súrrealisma.
Gíraffar eru sætir.
Harmonikkur líka.

//eög

siggaligg said...

ég tók svona það besta úr að mínu mati. Þetta með áhættufjarfestingarnar eru svo fyndið og þarna franska leiðin!

Guðrún, hefurðu tékkað á newiceland.net? Mæli eindregið með því :-)