Akureyrar-ferð yfirstaðin. Það var ógurlega gaman og ég kann ekkert smá vel við þennan bæ. Allir voru eitthvað svo elskulegir og brosmildir og bærinn auðvitað mjög fallegur. Geir Hannes lagðist reyndar í skítapest en það var fljótt að rjátlast af honum og eftir einn hangsidag inni, var farið í stjá og við lentum í ógurlegum ævintýrum. Ég villtist svo oft þarna að ég var farin að efast stórkostlega um greindarvísitöluna en svona mér til varnar, þá heita allar götur Þórunnarstræti og Mýrarvegur svo þegar maður er að leggja á sig götuheiti eða eitthver kennileiti þá er mjög slæmt að muna eftir þessum götum. ,,OK, svo beygi ég hérna inn á Þórunnarstræti" er t.d dæmt til að klúðrast því það er hægt að beygja inn á þá götu svo til allstaðar og ef maður man t.d að maður ,,keyrði þarna Mýrargötu og svo inn einhverja götu og þá var maður kominn á Þórunnarstræti" þá getur maður eins reikað um bæinn það sem eftir er. Sérstaklega þar sem íbúðin var einmitt hinum megin í bænum eins og ég átti alls ekkert að vera að þvælast um áðurnefndar götur, botna reyndar ekkert í mér þegar ég skoða götukortið (sem gleymdist heima).
Sunday, December 14, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
o frábært! Komdí kaffi!
Þakka hátíðlega fyrir boðsmiðann!
Þakka hátíðlega lesturinn Helga mín! Það bíða þín boð á facebook.
yes! ég fékk boð ;)
heyrðu, þurfum við ekki að ræða eitthvað morgundaginn? þegar piparkökur....
jú, hringi í þig eftir smá stund. Ég myndi vilja hittast um 2 hálf 3 leytið..if possible?
Post a Comment