Tuesday, January 06, 2009

2000 og NÝJU*

Nýtt ár og nýtt upphaf.
Ég ætla mér að rísa upp úr rústunum eins og fuglinn Fönix. Hvorki meira né minna.
Annars er eitthvað um áramótaheitstrengingar eins og venjulega sem ég er áfjáð í að deila:

Venja krakkana á að sofna sjálf eftir kvöldlestur.
Venja Geir á að sofa í sínu rúmi (a.m.k að hann sofni þar).
Fara í ræktina í hádeginu.

Standa mig ógeðslega vel í skólanum (blogg og facebooktímar verða skammtaðir)
Senda Helgu Birgis jólakortið sem ég lofaði. Vonandi næst það fyrir jól!

Svo væri gaman að flytja, koma fjármálum í lag og vera með hoppandi gott sjálfstraust en sjáum til með það, best að byrja smátt í nýju lífi.

* ég þakka Elínu Ösp fyrir ábendinguna ;-) ég lifi í fornöld þið vitið, 209 f.K eða e.K það er ekki alveg vitað.

9 comments:

Elin Osp said...

Bíddu, er það ekki 2000 og níu...? Múahahahahahaha;)

Líst vel á heitin, ek undir með þér í mörgum þeirra, altso, fyrir mig líka. Ræktum okkur saman :)

Blæjos!
//eög


...og takk fyrir boðið esssssssskan mín!

helgabi said...

Það væri frábært að fá jólakortið - kannski bara fyrir næsta haust!

hanna rún said...

halló

Tinnuli said...

Mér þykir þú setja þér háleit markmið mín kæra. Ræktin í hádeginu?! En það er líka best að hyggja hátt og láta fátt :)
Ps. Þú ert æði.

Svanhvít said...

Elsku Sigga! Sakna þín! Skæp bráðum? Ég er alltaf laflaus þessa dagana.

Koss og knús á línuna

Regnhlif said...

Hvar er bloggið?

20 daga pása...

Anonymous said...

Beibílov, á ekkert að tjá sig um atburði síðustu daga og vikna?

//eög

Guðrún Vald. said...

Hey ég hélt að þú hefðir ekki bloggað í meira en mánuð, en ég sé að google ríderinn minn er ekkert að segja mér frá nýjum færslum. Ég verð því bara að gera síðuna þína að daglegum viðkomustað í nethringnum mínum.
....það er samt svolítið langt síðan þú hefur bloggað sé ég...blogg blogg!

Regnhlif said...

æi, Sigga, ertu hætt að blogga?