Já hérna! Er það ekki dæmigert að þegar það er tæpur klukkutími til prófs þá kemur óstjórnlega bloggþörf yfir mann? og það les þetta enginn einu sinni.
Facebook hefur aðeins náð að vinna bloggið í baráttunni um samskipti. En samt hef ég saknað bloggsins í einhvern tíma. Þetta er allt svo stutt og snaggaralegt á facebook, maður saknar pínu langra frásagna og kommenta. Annars tel ég mig vera frumkvöðul í þessum statuskúltúr. Það herrans ár, 2007, bilaði nefnilega síðan mín og það var bara hægt að skrifa titla. Það þótti mér ótækt. Hálfu ári síðar eða svo var maður farinn að skilgreina líf sitt og atburði í titlaformi, statusum og einni setningu. Svona er tilveran skrýtin skrúfa.
Jæja, nú má maður bara varla vera að þessu mikið lengur. En svona ef farið er yfir afrekalista ársins þar sem 200 og NÝJU er að verða búið þá tókst mér ekki að láta Geir sofna í eigin rúmi þótt þau sofni núna mun fyrr og vandræðalausar. Og mér tókst ekki að koma jólakorti til Helgu Birgis. Skamm Sigríður. Skamm!!
Thursday, November 05, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Mér datt sísvona í hug að kíkja á gamla bloggið þitt. Ætlarðu ekki bara að fara að blogga aftur Siggaligga? Það væri nú gaman :)
:) en gaman að sjá lífsmark hér inni! hef fengið hugboð...jú mig langar svolítið til að fara að blogga aftur. hvur veit :)
Post a Comment