Monday, January 16, 2012

Updeit

Ekki enn búin að ryksuga bílinn að innan.

Fylgist spennt með! Mun það gerast í dag? (Mér finnst það ólíklegt).

Gaman að fylgja svona fréttum eftir. Nú get ég ekki rætt um annað næstu daga en ýmsar hliðar á stóra ryksugumálinu. Hver ber ábyrgðina? Hvernig á að taka á vandanum þannig að sem minnstur skaði verði? Bíður orðspor mitt hnekki?

Saturday, January 14, 2012

Ég er búin að hlakka til síðan á miðvikudaginn að eiga barnahelgi og kúra í kotinu með krökkunum. Það hefur svo sannarlega verið stuð hjá okkur í dag, ákaflega gestkvæmt og nú sofa tveir litlir frændur saman í rúmi alveg eins og englar. Við gröðkuðum í okkur pítsu og átum of mikið af nammi fyrir framan Eurovision sem er alltaf klassíker í kósíkvöldabransanum.

Annars á ég við ótrúlega erfitt vandamál að etja núna. Í dag ákvað ég að þrífa bílinn að innan, það var komin ókennilegur þefur inn í hann sem gýs alltaf upp þegar þíðir. Ef það er rottulík að rotna undir sætinu þá fannst mér kominn tími til að horfast í augu við þá staðreynd og sendi Geir og Toussaint nokkurn Hrafn í málið. Þeir fengu ekki að vita af grunsemdum mínum en fóru galvaskir að týna rusl úr bílnum og komust bara óskaddaðir frá því sýndist mér. Jæja, svo ákveður frúin að taka nú sætin í gegn og úða eins og vitlaus einhverju áklæðis(eitri)hreinsi út um allt. Það á eiginlega að ryksuga fljótlega upp en svo nennti ég bara ekki að ryksuga bílinn sem núna er ónothæfur vegna eiturgufna. Ef það er dauð rotta eftir allt saman inn í bílnum þá hlýtur hún að stoppast upp og hætta að rotna í þeim óþef sem núna er tekinn við.

En já, í þetta mál þarf að ganga í af fullri alvöru á morgun.




Thursday, January 12, 2012

Bókhlöðublogg

Klara systir mín fann sex jólatré niðrí geymslu hjá sér í einhverjum legendary þrifum sem þar fara fram. Þetta vakti mig til umhugsunar um mína geymslu.

Ég veit nákvæmlega hvað er í hverjum kassa þar inni og öllu er raðað mjög skipulega eftir innihaldi. Er þetta normal ástand?

Wednesday, January 11, 2012

Tjáningarþörfin


HÆ!! veivei ég ætla að blogga aftur. Jafnvel að maður skelli inn einni mynd hingað inn, svona til að poppa þetta upp. Ég ákvað að setja inn sumarmynd sem ég tók einmitt til að ylja mér við í vetur.

Í dag er miðvikudagurinn 11. janúar 2012. Ótrúlegt hvað maður hefur komist langt síðan tilvera mín fór á hvolf haustið 2007. Nú er ég búin með sálfræðina og byrjuð í svakalega dúbíus og spennandi mastersnámi sem ég veit varla sjálf út á hvað gengur. En ég veit að það á eftir að skila mér í dúbíus og spennandi stöður í framtíðinni. Ég meina það, að vera sérfræðingur í lífsleikni og farsæld já og sjálfsmyndum (í flt) þetta hlýtur að enda vel!

Stóra mokunarmálið sligar fólk. Hressandi tilbreyting að geta æst sig yfir því hvort borgin sé að standa sig í snjómokstri og saltálaggningu og sleppt því bara að minnast á Ólaf Ragnar og Æseif, DO og Moggann, skjaldborg ríkisstjórnarinnar um heimilin o.þ.h. Ákveðin geðvernd fólgin í því. Svo finnst mér þetta brjóstastækkunarmál allt hið skemmtilegasta þó að það sé auðvitað ekkert gaman fyrir þær konur sem lenda í þessu. Alls ekki. Síðustu fréttir herma að ein hafi misst hárið við þau ósköp að láta græða þetta í sig og að missa hárið er ekkert djók, það veit ég af eigin reynslu. En þessi brjóstapúðaskandall er vissulega tilbreyting frá til dæmis gæsluvarðhaldsfréttum yfir einhverjum útrásarvíkingum. Svona bjarga konur alltaf öllu! Dóttir mín er náttúrulega með það á hreinu en frá henni heyrðust siguróp um daginn þegar ég kom bílnum út úr sköflum og frostdýum en það stóð tæpt að ég festi mig. Æpir sú stutta þá úr aftursætinu: Mamma. Þú reddar þér alltaf!! Út úr öllu! Sver það, hún hafði þetta ekki eftir mér en barnið er auðvitað bæði bráðgert og séní. Seiseijú.


Thursday, November 05, 2009

Já hérna! Er það ekki dæmigert að þegar það er tæpur klukkutími til prófs þá kemur óstjórnlega bloggþörf yfir mann? og það les þetta enginn einu sinni.

Facebook hefur aðeins náð að vinna bloggið í baráttunni um samskipti. En samt hef ég saknað bloggsins í einhvern tíma. Þetta er allt svo stutt og snaggaralegt á facebook, maður saknar pínu langra frásagna og kommenta. Annars tel ég mig vera frumkvöðul í þessum statuskúltúr. Það herrans ár, 2007, bilaði nefnilega síðan mín og það var bara hægt að skrifa titla. Það þótti mér ótækt. Hálfu ári síðar eða svo var maður farinn að skilgreina líf sitt og atburði í titlaformi, statusum og einni setningu. Svona er tilveran skrýtin skrúfa.

Jæja, nú má maður bara varla vera að þessu mikið lengur. En svona ef farið er yfir afrekalista ársins þar sem 200 og NÝJU er að verða búið þá tókst mér ekki að láta Geir sofna í eigin rúmi þótt þau sofni núna mun fyrr og vandræðalausar. Og mér tókst ekki að koma jólakorti til Helgu Birgis. Skamm Sigríður. Skamm!!

Tuesday, January 06, 2009

2000 og NÝJU*

Nýtt ár og nýtt upphaf.
Ég ætla mér að rísa upp úr rústunum eins og fuglinn Fönix. Hvorki meira né minna.
Annars er eitthvað um áramótaheitstrengingar eins og venjulega sem ég er áfjáð í að deila:

Venja krakkana á að sofna sjálf eftir kvöldlestur.
Venja Geir á að sofa í sínu rúmi (a.m.k að hann sofni þar).
Fara í ræktina í hádeginu.

Standa mig ógeðslega vel í skólanum (blogg og facebooktímar verða skammtaðir)
Senda Helgu Birgis jólakortið sem ég lofaði. Vonandi næst það fyrir jól!

Svo væri gaman að flytja, koma fjármálum í lag og vera með hoppandi gott sjálfstraust en sjáum til með það, best að byrja smátt í nýju lífi.

* ég þakka Elínu Ösp fyrir ábendinguna ;-) ég lifi í fornöld þið vitið, 209 f.K eða e.K það er ekki alveg vitað.

Saturday, December 20, 2008

Stórtæka Sigríður

Mér fannst ekki veita af að prenta 61 stk af jólakortum af okkur og er núna í pípandi vandræðum með að koma þessu út.